Skemmtikvöldi í Dunhaga
Góðir Tálknfirðingar og nærsveitungar
Er ekki kominn tími til að hittast og skemmta sér saman eina kvöldstund?
Björgunarsveitin Tálkni, Kvenfélagið Harpa og Ungmennafélag Tálknafjarðar
ætla að standa fyrir skemmtikvöldi í Dunhaga til fjáröflunar fyrir félögin
laugardagskvöldið 18.febrúar
Kvöldið verður með léttu vísnaþema og mottóið er:
Maður er manns gaman!
Öllum er heimilt að koma fram með skemmtiatriði,
syngja, spila á hljóðfæri, lesa ljóð, flytja vísur, frumsamdar eða eftir aðra, segja skemmtisögur eða annað sem gaman er að og vekur hlátur.
Áhugasamir skemmtikraftar geta haft samband við vísnanefndina:
Lilja Magnúsdóttir í síma 895-2947
Pálína Hermannsdóttir í síma 690-9939
Heiðar Jóhannsson í síma 895-2500
Verðlaun verða veitt fyrir bestu vísubotnana
Fyrsti fyrripartur:
Þrællinn kominn Þorra er
þungur reyndist vetur
Annar fyrripartur:
Góa heilsar guma' og snót
gleðjist allur lýður
...... og botnið þið nú!
Takið kvöldið frá í dagskrá heimilisins.
Mætum öll og njótum kvöldsins í góðum félagsskap.
Skemmtum okkur saman og styrkjum góð málefni.
Vísnakvöldið verður nánar auglýst í næstu viku.
- Hvar?
Dunhagi - Hvenær?
18. febrúar - Klukkan?
20:30
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Hreppsnefnd | 442. fundur 9. maí 2012
- Bygginga- og umhverfisnefnd | 40. fundur 8. maí 2012
- Hreppsnefnd | 441. fundur 24. apríl 2012
- Skólanefnd | 68. fundur 20. apríl 2012
- Húsnæðisnefnd | 17. fundur 10.apríl 2012
- Sjá allar fundargerðir
