Tálknafjarðarskóli auglýsir lausa stöðu Deildarstjóra leikskóla
Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri.
Í Tálknafjarðarskóla eru laus til umsóknar eftirfarandi staða:
Staða deildarstjóra á leikskóladeild (100% starf).
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í leikskóla
-
Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
-
Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
-
Reglusemi og samviskusemi
-
Hefur hreint sakarvottorð
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2020.
Ráðið verður í stöðuna frá 3. febrúar 2020.
Upplýsingar gefur Birna Hannesdóttir skólastjóri í síma 456-2537
Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið skolastjori@talknafjordur.is
og verður móttaka umsókna staðfest.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 44. fundur 11. október 2023 (fundargerð vantar)
- Fræðslunefnd | 14. fundur 8. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 622. fundur 14. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 13. fundur 17. október 2023
- Sjá allar fundargerðir