120 sementsflutningabílar vegna uppbyggingar fiskeldis á Tálknafirði
Geysimiklar framkvæmdir eru í uppbyggingu fiskeldis og annars iðnaðar á sunnanverðum Vestfjörðum. Aalborg Portland sinnir þangað miklum sementsflutningum frá Helguvík. Það var einmitt Guðmundur Hilmarsson sem ók fyrsta flutningabílnum um borð í nýja Baldur í áætlunarferð yfir Breiðafjörðinn þegar skipið fór sína fyrstu ferð í liðinni viku. Guðmundur er bílstjóri hjá sementsinnflutningsfyrirækinu Aalborg Portland. Hann kveðst í samtali við blaðamann Skessuhorns aka sementi á einum af fjórum bílum fyrirtækisins um land allt frá birgðastöðinni í Helguvík. Það var á sinn hátt táknrænt fyrir bjartsýnina sem fylgir hinu nýja skipi að það skyldi einmitt vera bíll með byggingarefni sem ók fyrstur um borð með farm inn á rúmgott bílaþilfar nýja Baldurs. „Ég fer með þetta til steypustöðvarinnar á Bíldudal. Þeir eru nú að fara að framleiða tólf þúsund rúmmetra af steinsteypu í mannvirki tengdum fiskeldinu og vinnslu við það á Tálknafirði. Við erum með 32 tonn af sementi í hverri ferð á þessum bílum. Það er efni í hundrað rúmmetra af steinsteypu. Þannig að þú sérð að við munum fara 120 ferðir keyrandi með sement vestur, bara til að anna þessu verkefni þarna á Tálknafirði,“ sagði Guðmundur.
Frétt tekin af: skessuhorn.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Skipulagsnefnd | 12. fundur 19. september 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 43. fundur 13. september 2023
- Fræðslunefnd | 12. fundur 13. september 2023
- Sveitarstjórn | 619. fundur 26. september 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sjá allar fundargerðir