A A A

Átt þú rétt á styrk vegna vöruflutninga?

Á Vestfjörðum getur styrkurinn numið allt að 20% af flutningskostnaði samkvæmt lögum nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun.
 

Fulltrúar Byggðastofnunar verða  með kynningarfund vegna umsókna um flutningsjöfnunarstyrki fimmtudaginn 14. mars kl 14:00 í fundarsal þróunarsetrisins á Ísafirði.
 

Hægt verður að taka þátt í fundinum gegnum fjarfundarbúnað á Hólmavík og í Skor þekkingarsetri á Patreksfirði.
 

Á heimasíðu Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is má finna upplýsingar um flutningsjöfnunarstyrki sem gagnlegt er að fara í gegn um fyrir fund. Umsóknarfrestur um styrki er til 31. mars n.k. en opnað verður fyrir umsóknir á allra næstu dögum.
 

Nánari upplýsingar veitir Anna Lea Gestsdóttir hjá Byggðastofnun í síma 455-5433/660-5544 (anna@byggdastofnun.is) og  Jón Páll Hreinsson, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða í síma 450 3051/8994311 (jonpall@atvest.is)

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón