A A A

Auglýsing um kjörfund í Tálknafjarðarhreppi í sveitarstjórnarkosningum 2014

Kjörfundur í sveitarstjórnarkosningum, er fram á að fara 31. maí 2014 verður í Tálknafjarðarskóla og hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 18:00.
 

Kosningar til sveitarstjórnar í Tálknafjarðarhreppi eru óbundnar kosningar/persónukosningar þar sem kosning er ekki bundin við framboð. Allir kjósendur eru í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því.

Eftirtaldir hafa skorast undan endurkjöri og eru því atkvæði þeim greidd ógild:

Birna Benediktsdóttir, Móatúni 3, Tálknafirði

Björgvin Smári Haraldsson, Túngötu 29, Tálknafirði

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Miðtúni 18, Tálknafirði

Heiðar Ingi Jóhannsson, Túngötu 13, Tálknafirði

 

Öllum öðrum kjósendum í Tálknafirði sem eru kjörgengir, heilir og hraustir og yngri en 65 ára, er skylt að taka kjöri í sveitarstjórn við óbundna kosningu.
 

Talning atkvæða verður í Dunhaga og er stefnt að því að hún hefjist um kl. 20:00. Talning atkvæða er öllum opin.


Kjörstjórn Tálknafjarðarhrepps

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón