Auglýsing um skipulagslýsingu
Auglýsing um skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018 vegna Norðurbotns í Tálknafirði.
Gerð hefur verið svokölluð lýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018 vegna breytingar á landnotkun í Norðurbotni í Tálknafirði sbr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á fundi bygginganefndar Tálknafjarðar þann 21. mars sl. og á fundi hreppsnefndar 10. apríl var skipulagslýsingin samþykkt. Skipulagslýsingin er nú til kynningar í samræmi við 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tálknafjarðarhreppur vinnur nú að breytingum á aðalskipulagi. Um er að ræða breytingu í
þremur iðnaðarsvæðum í landi Norður‐Botns. Í fyrsta lagi er afmörkun borhola. Í öðru lagi nýtt
svæði fyrir fiskeldi í Botnsdal sem er stækkun á svæði I3 þar sem er þegar fyrir fiskeldi og
heitavatnsholur. Í þriðja lagi 2‐3 kW smávirkjun í Keldá. Einnig verður skilgreint betur núverandi og fyrirhugaða landnotkun á svæðinu. Samhliða aðalskipulagsbreytingunni er stefnt að því að auglýsa deiliskipulag fyrir svæðið.
Skipulagslýsingin er til sýnis á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps www.talknafjordur.is og skrifstofu Tálknafjarhrepps Mótúni 2, 460 Tálknafirði, frá 18. apríl – 10. maí 2013 á skrifstofutíma.
Athugasemdir við skipulagslýsinguna skulu berast Skrifstofu Tálknafjarðarhrepps eigi síðar
en 11. maí og skulu þær vera skriflegar.
Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um aðalskipulagsbreytinguna og hún kynnt
samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 og skipulagsreglugerð nr. 90/2013
Ármann Halldórsson
byggingarfulltrúi Tálknafjarðarhrepps
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir