Borun á vinnsluholu í landi Litla - Laugardals
Eins og kunnugt er stendur til að bora eftir heitu vatni í landi Litla-Laugardals. Tálknfirðingar eru orðnir ansi langeygir eftir að borun hefjist, enda gríðarlegur áhugi og spenna fyrir því að hér finnist nægilegt vatn til þess að leggja hitaveitu í þorpið. Á fundi hreppsnefndar í nóvember kom fram að von væri á bormönnum Ræktunarsambands Flóa og Skeiða um miðjan desember, það gekk því miður ekki vegna ófyrirsjáanlegra tafa af völdum bilana við vinnslu á núverandi verki sem er að Hoffelli við Höfn í Hornafirði. Strax að því verki loknu mun borinn koma hingað og hafist verður handa við borun.
Meðfylgjandi er linkur inn á frétt RÚV þar sem þessi staða kemur fram.
http://www.ruv.is/sarpurinn/frettir/18012013/heitt-vatn-fyrir-hofn
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir