A A A

Breyttur opnunartími Gámavalla

Frá og með 3. mars 2021 mun opnunartími Gámavalla á Tálknafirði breytast og verða frá kl. 16:00 til 18:00 á miðvikudögum. Á þessum tíma er tekið á móti flokkuðum úrgangi frá íbúum og fyrirtækjum.

 

Fólk er minnt á að hafa klippikort með sér þegar farið er með úrgang á Gámavelli. Vanti klippikort er bent á að hafa samband við skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Strandgötu 38 eða í síma 450-2500. Þessi tími á opnun Gámavalla mun gilda fram á sumarið 2021, en þá verður farið að vinna eftir nýju fyrirkomulagi sem tekur gildi í framhaldi af fyrirhuguðu útboði á sorphirðu.

 

Þá er rétt að segja frá því að laugardaginn 13. mars n.k verða Gámavellir opnir, en það verður betur kynnt þegar nær dregur.

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón