Brunavarnaáætlun fyrir Vesturbyggð og Tálknafjörð
Ný brunavarnaáæltun fyrir Vesturbyggð og Tálknafjörð hefur verið samþykkt og undirrituð af framkvæmdastjórum sveitarfélaganna, slökkviliðsstjóra og forsjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Á Íslandi eru 33 slökkvilið starfandi á vegum 64 sveitarfélaga. Í heildina eru nú 20 af 33 slökkviliðum með gilda brunavarnaáætlun eða alls 89% íbúa landsins. Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast við áhættur á sínu svæði.
Brunavarnaáætlunin er nú aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins en einnig eru hún birt á vef HMS.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 13. fundur 21. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 14. fundur 21. nóv 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 11. fundur 23. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 623. fundur 28. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Sjá allar fundargerðir