Deiliskipulag Látrabjargs, opið hús á Patreksfirði
28. febrúar nk. kl.18:00 verður opið hús í félagsheimili Patreksfjarðar vegna deiliskipulagsvinnu við Látrabjarg og nágrenni.
Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða, Hvallátra, Breiðavík og Keflavík. Á staðnum verða fulltrúar Barrk arkitektastofu sem vinna skipulagið fyrir hönd Vesturbyggðar. Einnig verða starfsmenn Umhverfisstofnunar og Vesturbyggðar sem koma að skipulagsmálunum. Vinnugögn fyrirhugaðs deiliskipulags eru aðgengileg á heimasíðu Vesturbyggðar www.vesturbyggd.is og hjá skipulagsfulltrúa í síma: 4502300/4502312 eða tölvupósti á armann@vesturbyggd.is. Einnig er hægt að óska eftir gögnum skriflega hjá undirrituðum.
Íbúar og hagmunaaðilar eru hvattir til þess að mæta og gefst þeim tækifæri á að kynna sér skipulagsvinnuna og koma með spurningar og athugasemdir. Til kynningar verða uppdrættir í vinnslu af svæðunum.
Vinnugögn tillögunnar má sjá hér
Hér má sjá uppbyggingu deiliskipulags
Ármann Halldórsson Skipulags -og byggingarfulltrúi Vesturbyggðar
Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir