A A A

FSN auglýsir eftir starfsfólki

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir

Framhaldsskólakennurum

Meðal kennslugreina eru:

Enska, efnafræði, eðlisfræði, líffræði, lífsleikni og stærðfræði (afleysing).

 

Náms- og starfsráðgjafa

Náms- og starfsráðgjafi 50%

 

Ræstingar

Ræstingar 50%

 

Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, framhaldsskólabraut og starfsbraut. Skólinn er með framhaldsskóladeild á Patreksfirði. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru  nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2015.
 

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.
 

Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2015.
 

Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sakavottorð þarf að liggja fyrir við ráðningu. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is og aðstoðarskólameistari Hrafnhildur Hallvarðsdóttir hrafnhildur@fsn.is. Einnig er hægt að hafa samband í síma 4308400 eða 8917384. Á vef skólans www.fsn.is má auk þess finna ýmsar upplýsingar um skólann.
 

Skólameistari

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón