A A A

Fjölgun smita á sunnanverðum Vestfjörðum

Staðfestum covid smitum hefur nokkuð fjölgað á sunnanverðum Vestfjörðum og er staðan núna sú að 22 einstaklingar eru með staðfest smit. Flest eru smitin á Patreksfirði. Vettvangsstjórn almannavarna á sunnanverðum Vestfjörðum fundaði fyrr í kvöld og einnig aðgerðarstjórn Tálknafjarðarhrepps. Enn þykir ekki ástæða til að grípa til takmarkanna á starfsemi stofnanna Tálknafjarðarhrepps umfram það sem almennar sóttvarnarreglur segja til um. Á því er þó sú undantekning að Félagsmiðstöðin Tunglið verður lokuð út vikuna. Þá eru íbúar beðnir um að koma ekki á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps nema brýna nauðsyn beri til og gæta þá vel að sóttvörnum. Áfram verður náið fylgst með þróun mála í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld og aðgerðarstjórn Almannavarna.
 

Áframhaldandi sýna­taka verður á vegum Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða í Félags­heimilinu á Patreks­firði á morgun frá kl. 9:30, fimmtudaginn 25. nóvember nk. Allir íbúar með einkenni (þó þau séu lítil) eða tengsl við smitaða einstak­linga eru hvattir til að mæta í sýna­töku eftir að hafa bókað sig á Heilsu­veru. Heimsóknabann er á legudeild heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði.
 

Fjöldi bólusettra einstaklinga á sunnanverðum Vestfjörðum er mjög góður og því erum við í betri stöðu en við vorum fyrir ári síðan að takast á við smitin sem nú hafa komið upp. Tálknafjarðarhreppur hvetur alla íbúa til að gæta að einstak­lings­bundnum sótt­vörnum, hafa hægt um sig næstu daga og standa saman eins og samfélaginu er einu lagið til að draga úr frekari hættu á útbreiðslu smita.

 

Ólafur Þór Ólafsson

sveitarstjóri

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón