Flugeldasýning á gamlárskvöldi kl. 20:30
Að venju mun Björgunarsveitin Tálkni bjóða Tálknfirðingum upp á veglega flugeldasýningu á gamlárskvöldi, föstudaginn 31. desember. Sýningin hefst kl. 20:30 og að þessu sinni verður skotið frá steypta vellinum fyrir aftan Hópið. Fimm mínútum áður en hin eiginlega sýning hefst verður einn skoteldur settur í loftið til að minna á að sýningin sé að hefjast.
Vegna sóttvarnareglna er fólk vinsamlegast beðið um að njóta sýningarinnar frá heimilum sínum og aðeins með sínum nánustu. Það á alls ekki að fara nær skotstað en að Hrafnadalsvegi. Vegna þeirra fjöldatakmarka sem nú eru í gildi og tilmæla frá sóttvarnaryfirvöldum hefur verið ákveðið að ekki verði áramótabrenna á Tálknafirði þetta árið.
Flugeldasala Tálkna er í húsnæði björgunarsveitarinnar við Strandgötu og er opin fimmtudaginn 30. desember milli kl. 18:00 og 22:00 og föstudaginn 31. desember milli kl. 12:00 og 14:00. Tálknfirðingar eru hvattir til að styðja við nauðsynlegt og óeigingjarnt starfs sveitarinnar með kaupum á skoteldum, en muna samt að virða sóttvarnarreglur þegar sölustaðurinn verður heimsóttur.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir