Fundur með umhverfis- og samgöngunefnd alþingis
Fulltrúar bæjarstjórnar Vesturbyggðar og sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps mættu á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag til að fara yfir þá alvarlegu stöðu sem uppi er vegna vegalagningar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit.
Á fundinum var komið á framfæri við nefndina áherslum og hagsmunum sveitarfélaganna um mikilvægi þess að farið verði í vegabætur á Vestfjarðavegi strax. Var nefndin upplýst um að frekari tafir á vegalagningu geti haft alvarleg áhrif fyrir Vestfirði. Þá voru nefndarmenn upplýstir um þau samskipti sem sveitarfélögin tvö ásamt Fjórðungssambandi Vestfjarða hafa átt við sveitarstjórn Reykhólahrepps á síðustu mánuðum. Fulltrúar sveitarfélaganna tveggja lögðu áherslu á að áfram yrði unnið með Þ-H leiðina, þar sem undirbúningur vegna þeirrar vegalagningar er lengra á veg komin en undirbúningur vegna R-leiðarinnar en Vestfirðingar geta ekki beðið lengur eftir fullnægjandi samgöngubótum. Á fundinum voru ekki teknar ákvarðanir en ljóst er að skera þarf á þann hnút sem enn og aftur er kominn upp í þessu máli.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir