Fundur um fjallskil
Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar boðar hér með til fundar með sauðfjárbændum á sunnanverðum Vestfjörðum til að ræða framkvæmd við fjallskil. Tilgangur fundarins er að koma á samtali milli sveitarfélaganna og sauðfjárbænda um framkvæmd fjallskila og hvernig bæta megi framkvæmdina.
Fundurinn fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar, mánudaginn 2. mars 2020 kl. 19:30.
Ólafur Dýrmundsson, doktor í búvísindum mun halda erindi um fjallskil og einnig verður farið yfir drög að fjallskilaseðli 2020.
Við hvetjum sauðfjárbændur til að mæta til fundarins og taka þátt í samtalinu um að bæta framkvæmd fjallskila.
Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 44. fundur 11. október 2023 (fundargerð vantar)
- Fræðslunefnd | 14. fundur 8. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 622. fundur 14. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 13. fundur 17. október 2023
- Sjá allar fundargerðir