Heilsuefling eldra fólks
Í dag, mánudag þann 10.október munum Ásgerður og Margrét, verkefnastjórar heilsueflingar 60+, koma í heimsókn, vera með kynningu fyrir eldri íbúa og taka fund með íbúum.
Staðsetning: Muggstofa, Strandgötu 7 Bíldual
Fundur hefst kl.17:00
Kynning fyrir eldra fólkið hefst kl.18:00
Þessar upplýsingar setjum við inn á vefinn www.bjartlif.is til að gera upplýsingagjöf á hreyfingu fyrir eldra fólk á öllu landinu sýnilegra og aðgengilegra.
Ef skortur er á upplýsingum úr ykkar sveitarfélagi eða breytingar hafa orðið á núverandi hreyfiúrræðum viljum við biðja ykkur um að senda inn þær upplýsingar: Senda inn framboð á hreyfingu hér
Hlökkum til að sjá sem flesta, kynna fyrir ykkur verkefnið Bjartur lífsstíll og ræða heilsueflingu eldra fólks í ykkar bæjar-/sveitarfélagi.
Fyrir þá sem ekki komast á fundinn þá er velkomið að finna staðgengil í ykkar stað. Auk þess ef það eru fleiri sem eiga heima á fundinum að bjóða þeim að mæta.
Bestu kveðjur,
Margrét og Ásgerður, verkefnastjórar heilsueflingar 60+
Margrét og Ásgerður, verkefnastjórar heilsueflingar 60+
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir