Hreyfivika á Tálknafirði 21.-27.maí 2018
Ágætu bæjarbúar.
Haldinn hefur verið hreyfimánuður í Tálknafjarðarskóla þar sem nemendur og starfsfólk hafa verið hvött til að koma gangandi eða hjólandi í skólann. Nú langar okkur að hafa hreyfiviku fyrir bæjarbúa þar sem markmiðið er að vekja alla til umhugsunar um hreyfingu og hollustu. Ýmislegt er í boði og vonandi taka sem flestir þátt.
Fyrst og fremst hvetjum við alla til að leggja bílnum og fara gangandi eða hjólandi í vinnuna þessa viku. Munum að jákvætt hugarfar er smitandi.
Í boði verður:
-
Mánudagur 21.maí kl: 14. Hjólreiðatúr að Sveinseyri og gengið eftir fjörunni. Tökum með nesti, hittumst við búðina og leikum okkur í fjörunni.
-
Miðvikudaginn 23.maí kl: 17. Opinn zumbatími hjá Mayu.
-
Fimmtudaginn 24.maí kl: 19:30 Útijóga. Hittumst hjá Túngötu 39.
-
Föstudagur 25.maí kl: 17 Sjósund. Mæting við pollinn. Hver þorir ? Jón Örn verður okkur innan handar.
-
Laugardagur 26.maí kl: 14. Ganga á Tungufell og fara alla leið að Tunguvatni ef veður leyfir og áhugi er fyrir hendi.
-
Sunnudagur 27.maí kl: 16:30. Leikir á Tungutúni í umsjá U.M.F.T.
Tökum þátt og höfum gaman saman.
Tálknafjarðarskóli
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir