A A A

Hvað býr í frumskógi Friðlandsins í Vatnsfirði

Hvað leynist djúpt í íslenskum frumskógi þar sem ekki nægir að standa upp til að rata til baka? Þar er falinn fjarsjóður fjölbreytts náttúruminja og lífríkis og jafnvel eitthvað sem þig langar að skoða betur? t.d. stórkostlegir fossar, burknar eða völuberg.
 
Landverðir ætla að bjóða upp á gönguferð inn með Vatnsdalsvatni laugardaginn 22. ágúst. Mæting er við Hótel Flókalund kl. 13:00
, þar verður sameinast í bíla og ekið að upphafi gönguleiðar. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, vera í góðum skóm og hafa með sér vatn og nesti. Gangan er miðlungs létt og tekur um 4 klst. Nánari upplýsingar í síma 822-4080.

 

Hlökkum til að sjá ykkur
Landverðir

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón