Hvað býr í frumskógi Friðlandsins í Vatnsfirði
Hvað leynist djúpt í íslenskum frumskógi þar sem ekki nægir að standa upp til að rata til baka? Þar er falinn fjarsjóður fjölbreytts náttúruminja og lífríkis og jafnvel eitthvað sem þig langar að skoða betur? t.d. stórkostlegir fossar, burknar eða völuberg.
Landverðir ætla að bjóða upp á gönguferð inn með Vatnsdalsvatni laugardaginn 22. ágúst. Mæting er við Hótel Flókalund kl. 13:00, þar verður sameinast í bíla og ekið að upphafi gönguleiðar. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, vera í góðum skóm og hafa með sér vatn og nesti. Gangan er miðlungs létt og tekur um 4 klst. Nánari upplýsingar í síma 822-4080.
Hlökkum til að sjá ykkur
Landverðir
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 591. fundur 12. maí 2022
- Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar | 64. fundur 3. maí 2022
- Fræðslu-,menningar-,íþrótta-, æskulýðsnefnd | 48. fundur 3. maí 2022
- Sveitarstjórn | 590. fundur 27. apríl 2022
- Sveitarstjórn | 589. fundur 5. apríl 2022
- Sjá allar fundargerðir