A A A

Kvennaríki í skipulagsnefnd

Að loknum 7. fundi skipulagsnefndar Tálknafjarðarhrepps. Frá vinstri: Bára Mjöll Ragnheiðardóttir, Lilja Magnúsdóttir og Ingibjörg Jóna Nóadóttir.
Að loknum 7. fundi skipulagsnefndar Tálknafjarðarhrepps. Frá vinstri: Bára Mjöll Ragnheiðardóttir, Lilja Magnúsdóttir og Ingibjörg Jóna Nóadóttir.

Skipulagsnefnd Tálknafjarðarhrepps fundaði þriðjudaginn 21. mars sl. á fundi sem telst vera númer sjö í röðinni hjá nefndinni. Á ágætum fundi fjallaði nefndin ýmislegt, svo sem nýtt aðalskipulag sem nú er í vinnslu.

 

Þessi fundur var þó einkum merkilegur fyrir þær sakir það voru einungis konur sem sátu sem aðalfulltrúar á honum, í fyrsta skipti sem það gerist hjá skipulagsnefnd hjá Tálknafjarðarhreppi. Vegna forfalla aðalfulltrúans Kristins Marinóssonar sat varafulltrúinn Bára Mjöll Ragnheiðardóttir fundinn ásamt þeim Lilju Magnúsdóttur, formanni, og Ingibjörgu Jónu Nóadóttur. Það var þó ekki algert kvennaríki á fundinum því varafulltrúinn Ásgeir Jónasson tók sæti við afgreiðslu eins málsins.

 

Í gegnum tíðina hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem hafa fjallað um skipulags- og byggingamál hjá sveitarfélögum. Sem betur fer hefur það verið að breytast á síðustu árum og þessi fundur skipulagsnefndar Tálknafjarðarhrepps því tímanna tákn.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón