A A A

Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn á Sauðárkróki í  júní n.k. Á fundinum verður í annað sinn veitt viðurkenning Byggðastofnunar undir heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“.

 

Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli á Ströndum og menningarfulltrúi Vestfjarða hlaut Landstólpann árið 2011. Dómnefnd taldi hann með störfum sínum undanfarin ár hafa vakið athygli á heimabyggð sinni á Ströndum á jákvæðan hátt, m.a. í fjölmiðlum, á vefnum og á málþingum og að hann hafi verið frumkvöðull í uppbyggingu ferðaþjónustu og fræðastarfs á svæðinu.

 

Viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. Um getur verið að ræða einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag.

 

Við óskum eftir ábendingum um handhafa þessarar viðurkenningar. Að ábendingum fengnum mun dómnefnd velja úr. Eftirfarandi þætti má hafa í huga við valið:

 

Hvort viðkomandi hafi:

-          gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði

-          aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu

-          orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til

-          dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

 

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.

 

Ábendingum má skila á heimasíðu Byggðastofnunar, byggdastofnun.is

 

Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir í síma 455-5400 eða netfang, sigga@byggdastofnun.is.

 

Frestur til að koma ábendingum til skila rennur út föstudaginn 11. maí 2012.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón