A A A

Landverðir - sunnanverðir Vestfirðir

Umsóknarfrestur

24.01.2020 til 07.02.2020
 

Inngangur

Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum til sumarstarfa á sunnanverða Vestfirði. Megin starfssvæði eru friðlandið Vatnsfirði, náttúruverndarsvæðið Látrabjarg og náttúruvættin Surtarbrandsgil og Dynjandi. Áætlað er að ráða í þrjú störf. Aðsetur landvarða verður í Vatnsfirði og í nálægð við Látrabjarg.
 

Verkefni

Störf landvarða felast í að gæta þess að ákvæði náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða séu virt. Þeir koma á framfæri upplýsingum og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, viðhald innviða og halda við merktum gönguleiðum. Landverðir þurfa að vera viðbúnir ef slys ber að höndum og er gerð krafa um að þeir sem ráðnir verða til starfa sæki skyndihjálparnámskeið eða hafi gild skyndihjálparréttindi. Boðið verður upp á skyndihjálparnámskeið fyrir landverði í vor.
 

Hæfniskröfur

- Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa - Reynsla af landvörslustörfum er kostur - Gild ökuréttindi er krafa - Góð færni í samskiptum er mikilvæg - Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta er kostur - Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur - Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir.
 

Tengiliður

Edda Kristín Eiríksdóttir
eddak@umhverfisstofnun.is
5912000
 

Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Sækja um

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón