Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum
Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Áherslur við seinni úthlutun 2011
Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, svo framarlega sem umsókn eða verkefni stangast ekki á við úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Umsóknir og verkefni eru hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli.
Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við seinni úthlutun ársins 2011 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.
# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.
Umsóknarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 6. október. Úthlutun fer fram í nóvember.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Vestfjarða á til þess gerðu eyðublaði eða í gegnum umsóknarform hér á vefnum undir tenglinum Styrkir. Umsækjendur eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á sama stað. Vakin er athygli á þeirri breytingu að fylgiskjöl með umsóknum eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir