Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum – frestur til 13. júní
Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga og er frestur til að sækja um til og með föstudeginum 13. júní. Styrkir verða veittir í tveimur flokkum, annars vegar stofnkostnaðar- og rekstrarstyrkir til menningarstofnanna og hins vegar verkefnastyrkir til afmarkaðra menningarverkefna. Tilgangurinn er að efla menningarstarfsemi á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli við úthlutun. Umsækjendum er bent á að kynna sér vandlega úthlutunarreglur, en þær er að finna á vefsíðunni www.vestfirdir.is undir Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir. Þar má einnig nálgast eyðublöð, bæði fyrir ritvinnslu og rafræn.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir