A A A

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða fyrir skólaárið 2012 – 2013 er kominn út, markar hann upphaf að fjórtánda starfsári miðstöðvarinnar.

 

Í námsvísinum eru tilgreind um 80 námskeið og námsleiðir, sem er nokkru meira en undanfarin ár.

 

Í tungumálum er boðið uppá ensku, frönsku, ítölsku og þýsku, auk íslensku fyrir útlendinga.

 

Í tölvum er bæði boðið uppá lengri námskeið í grunnatriðum, sem og stutt hnitmiðuð námskeið fyrir fólk sem vinnur við tölvur og þarf að skerpa kunnáttuna í einstaka forritum. Kallast þessi námskeið Gull í mund og verða kennd á morgnana.

 

Í flokki tómstunda eru margvísleg námskeið, svo sem fataviðgerðir, ísgerð, málmsuða og fyrirlestraraðir um tónlist og menningarlega fjölbreytni.

 

Í endurmenntun eru námskeið svo sem skyndihjálp, bókhald og hugræn atferlismeðferð.

 

Í réttindanámi er í boði bæði skipstjórnarnám, vélgæsla og meirapróf (aukin ökuréttindi).

 

Í lengra námi verður Fræðslumiðstöðin með ýmsar námsskrár frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, sem einnig eru kallað vottað nám því heimilt er að meta það til eininga í framhaldsskólum.

 

Þá verða í vetur kennd allmörg námskeið með styrk frá Fjölmennt – fullorðinsfræðslu fatlaðra.

 

Auk kennslu ýmissa námskeiða og lengra náms tekur Fræðslumiðstöð Vestfjarða þátt í nokkrum þróunarverkefnum. Má þar nefna 210 kennslustunda nám fyrir starfsfólk í leikskólum, 660 kennslustunda nám til undirbúnings háskólanámi og þátttöku miðstöðvarinnar í Fab Lab verkefninu með Menntaskólanum á Ísafirði og fleiri aðilum.

 

Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur kappkostað að þjóna atvinnulífi og einstaklingum á Vestfjörðum. Má í því sambandi nefna að miðstöðin hefur hannað nám fyrir erlenda frístundafiskimenn og prófað þá í skipstjórnarfræðum þannig að þeir hefðu heimild til að fara með báta hjá bátaleigunum, sem reka þess starfsemi. Var settur upp sérstakur vefur til að koma efninu til skila og er slóðin á hann www.plato.is/

 

Fræðslumiðstöð Vestfjarða rekur mannaðar starfsstöðvar á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði. Þar er hægt að fá frekari upplýsingar um námsframboð hjá miðstöðinni, en einnig er hægt að fá viðtöl við náms- og starfsráðgjafa miðstöðvarinnar. Er fólk hvatt til að nýta sé þá þjónustu. Hægt er að hringja, senda tölvupóst eða bara koma við hjá Fræðslumiðstöðinni og spjalla um möguleikana í rólegheitum.

 

Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | holmavik@frmst.is

Ísafjörður | Suðurgata 12 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is

Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | patro@frmst.is 


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón