A A A

Ögmundur vill kanna allar mögulegar láglendisleiðir nema um Teigskóg

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
1 af 2

Ögmundur Jónassson innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að hann vildi láta kanna allar mögulegar láglendisleiðir í gegnum Gufudalssveit í Austur-Barðastrandarsýslu, nema leiðina um Teigskóg, sem hann sagði út úr kortinu.  Ögmundur sagði að menn ættu að ,,losa um þráhyggjuskrúfuna í sálartetrinu" og afskrifa bæði hálsaleiðina, sem hann lagði til fyrir nokkrum vikum síðan og leiðina um Teigskóg, sem deilur hafa staðið um í áravís.  Ögmundur nefndi í staðinn möguleg göng undir Hjallaháls og þveranir yfir Þorskafjörð, með eða án sjávarfallavirkjunar.

Það var Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hóf umræðuna um Vestfjarðaveg 60 um Gufudalssveit á Alþingi í gær og spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra um hvað nú tæki við, eftir að heimamenn hafa allir í kór hafnað tillögu hans um að leggja nýjan veg um hálsana tvo, Hjallaháls og Ódrjúgsháls.  Umræðurnar á Alþingi má finna á vefnum og frétt Stöðvar 2 um málið í gærkvöld.

    Frétt tekin af skutull.is

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón