Safnadagur að Hnjóti 12. júlí 2015
Safnadagur að Hnjóti 12. júlí 2015
Dagskrá:
14:00: Messa í Sauðlauksdalskirkju.
15:00: Kaffi á Minjasafninu að Hnjóti.
16:00: Eyþór Eðvarðsson formaður Fornminjafélags Súgandafjarðar flytur fyrirlestur um starf félagsins og ástand strandminja á Vestfjörðum. Rannsóknir á fornminjum á Vestfjörðum hafa skilað áhugaverðum niðurstöðum, en ástand strandminja er áhyggjuefni. Merkilegar fornminjar eru að hverfa í sjóinn og verða horfnar eftir nokkur ár. Má þar nefna gamlar verstöðvaminjar, naust, varir, uppsátur og annað sem því tengist. Fornminjafélag Súgandafjarðar hefur staðið fyrir verkefnum sem tengjast þessum minjum, m.a. ráðstefnu í samstarfi við Minjastofnun, fésbókarsíðunni Áhugafólk um fornleifar á Vestfjörðum ofl.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir