Samtal um framtíð og samvinnu í markaðssetningu
Íslandsstofa og Markaðsstofa Vestfjarða boða til samtals aðila í ferðaþjónustu og tengdra hagsmunaaðila. Á fundinum er ætlunin að ræða möguleika á að stilla enn frekar saman strengi í markaðssetningu landshluta og á landsvísu. Hvaða árangri viljum við ná í ferðaþjónustunni í framtíðinni og hvað er árangur í okkar huga? Hvernig getum við unnið betur saman og nýtt okkur þá markaðssetningu sem fer fram?
Á fundinum verða Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu og Díana Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Vestfjarða sem mun stýra fundinum.
Fundarstaðir eru:
Tálknarfirði, 25 febrúar, kl: 14:30-16:30, Hópinu
Hólmavík, 26. febrúar, kl: 9-12, Café Riis
Ísafjörður, 26. febrúar, kl. 16-19, Hótel Ísafirði
Vonumst til þess að sjá sem flesta. Skráning fer fram hjá Díönu í netfangið: travel@westfjords.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir