A A A

Skipulagsmál í Tálknafirði

Áður auglýst breyting á aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018„afmörkun vatnsverndar, jarðborun og reiðleiðir í Tálknafirði “  sem samþykkt var á fundi hreppsnefndar þann 12.  september sl. er háð lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. 

Hér með er auglýst eftir athugasemdum við aðalskipulagsbreytinguna og umhverfisskýrslu sem fylgir skipulagstillögunni skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010  og  7 gr. laga nr.105/2006. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla   liggja frammi á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps Miðtúni 1, 460 Tálknafirði og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, 101 Reykjavík frá 4. desember 2012 til 16. janúar  2013. Ennfremur er gögnin aðgengileg hér:

Aðalskipulagsbreyting greinagerð og umhverfisskýrsla - (pdf - 823,71 KB)
Aðalskipulagsbreyting uppdráttur - (pdf - 3,47 MB)

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. janúar 2013. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps Miðtúni 1. 450 Tálknafirði eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt “Aðalskipulag Tálknafjarðar”. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.

Tálknafjörður 17. nóvember 2012
Ármann Halldórsson Byggingarfulltrúi

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón