Skólaakstur í Framhaldsdeild á Patreksfirði
Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir tilboði í skólaakstur fyrir Framhaldsdeild skólans á Patreksfirði veturinn 2011-2012.
Ekið er með nemendur að morgni, alla virka daga frá Tálknafirði og Bíldudal til Patreksfjarðar og til baka síðdegis.
Einnig eru farnar þrjár til fjórar ferðir til Grundarfjarðar á önn og þá þarf akstur fyrir alla nemendur framhaldsdeildarinnar (25-30).
Ekið er frá Patreksfirði síðdegis, í ferjuna á Brjánslæk og sækja þarf nemendur á Brjánslæk þegar komið er frá Grundarfirði og aka þeim til baka til Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals. Annar daglegur akstur fellur niður þá daga.
Ætla má að nemendur í skólaakstri frá Bíldudal verði 3 og um 7 frá Tálknafirði, auk starfsmanna framhaldsdeildar þar sem það á við. Heildarfjöldi nemenda framhaldsdeildar er um 27. Fjölbrautaskóli Snæfellinga áskilur sér rétt til að hafna tilboðum í heild eða taka tilboðum að hluta.
Tilboð óskast send til Jóns Eggerts Bragasonar, skólameistara, á netfang: joneggert@fsn.is eða í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 45, 350 Grundarfjörður.
Frestur til að skila inn tilboðum er til 17. ágúst 2011. Fyrsti skóladagur haustannar er 22. ágúst og fyrsta ferð í Grundarfjörð er 30. ágúst til 2. september. Frekari upplýsingar gefur skólameistari í síma 4308400.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 44. fundur 11. október 2023 (fundargerð vantar)
- Fræðslunefnd | 14. fundur 8. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 622. fundur 14. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 13. fundur 17. október 2023
- Sjá allar fundargerðir