A A A

Skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneyta

Komin er út skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Í skýrslunni er að finna greiningu á skiptingu kynjanna í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2010 auk þess sem farið er yfir þróun síðustu missera. Árið 2008 var leiddur í lög kynjakvóti í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins og hefur Jafnréttisstofa haft eftirlit með framkvæmd hans. Kynjakvótinn, sem kveðið er á um í 15 grein laga nr. 10/2008, gerir ráð fyrir að hlutur hvors kyns um sig skuli ekki vera minni en 40% nema hlutlægar ástæður heimili annað.


Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
• Hlutfall kynjanna í öllum nefndum árið 2010 var 40% konur 60% karlar.
• Hlutfall kynjanna í nýjum nefndum sem skipaðarvoru á starfsárinu 2010 var 43% konur 57% karlar.
• Þegar kynjakvótinn var leiddur í lög 2008 voru 43% nefnda í samræmi við kynjakvótann.
• Árið 2010 voru 50% starfandi nefnda skipaðar í samræmi við 15. greinina.
• Árið 2010 voru skipaðar 164 nefndir. Af þeim voru 109 eða 66% í samræmi við 15. greinina.
• Ráðuneytum gengur misvel að skipa í samræmi við 15. greinina. Hlutfallið er allt frá 100% niður í 38%.

Ljóst er að áfram þarf að vinna markvisst að því að skipa konur og karla til jafns í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Jafnréttisstofa hefur unnið í samstarfi við ráðuneytisstjóra og jafnréttisfulltrúa ráðuneytanna að því að finna leiðir til jafna hlutfallið frekar en farið er yfir það í skýrslunni.

Hér má lesa skýrsluna í heild

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón