A A A

Sögulegir samningar

1 af 2

Í gær, fimmtudaginn 11. júní, voru undirritaðir sögulegir samningar Í Fjölval á Patreksfirði. Um er að ræða samstarfssamninga á milli Héraðssambandsins Hrafna-Flóka og sveitarfélaganna Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps annars vegar og Héraðssambandsins Hrafna-Flóka og sex af stærstu fyrirtækjunum á sunnanverðum Vestfjörðum hins vegar. Þau eru Oddi hf Patreksfirði, Þórsberg ehf. Tálknafirði, Landsbankinn Patreksfirði, Arnarlax ehf. Bíldudal, Fjarðalax ehf. og Íslenska Kalkþörungafélagið ehf. Bíldudal.
 

Í byrjun febrúar árið 2014 var haldinn stefnumótunarfundur að tilstuðlan Héraðssambandsins Hrafna-Flóka í samstarfi við Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp. Á fundinum var staða íþrótta- og æskulýðsmála á svæðinu greind. Farið var yfir styrkleika og veikleika, ógnanir og tækifæri. Einnig var farið yfir hvernig væri hægt að bæta stöðuna og að lokum voru niðurstöðurnar dregnar saman og nokkur atriði sett sem forgangsverkefni.
 

Efst á þessum forgangslista var að fá starfsmann, íþróttafulltrúa á sunnanverðum Vestfjörðum sem ynni bæði fyrir HHF og sveitarfélögin. Þann 1. júní sl. tók til starfa Páll Vilhjálmsson sem slíkur. Annað atriði á forgangslistanum var að fá styrk frá bæði sveitafélögum og fyrirtækjum á svæðinu ásamt því að auka jákvæðni á svæðinu gagnvart starfseminni.
 

Samningarnir sem undirritaðir voru í gær eru í samræmi við yfirlýst markmið samstarfsaðila HHF um að styrkja það mikilvæga æskulýðs- og íþróttastarfs sem HHF vinnur að meðal barna og unglinga á sambandssvæði sínu.
 

Í viðbót við Lilju Sigurðardóttur, formanns HHF og Valdimar Gunnarsson tóku til máls Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð, Indriði Indriðason sveitastjóri Tálknafjarðarhrepps og Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri Ískalk. Lýstu þau yfir ánægju sinni með að samstarfssamningar væru undirritaðir og undirstrikuðu mikilvægi þeirra með fallegum orðum.
 

HHF þakkar sveitafélögunum og ofangreindum fyrirtækjum fyrir veittan stuðning, Fjölval á Patreksfirði fyrir veitingar og öllum þeim sem komu að viðburðinum á einn eða annan hátt.
 

Framtíðin er björt – ÁFRAM HHF!
 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón