Starfskraftur óskast í afleysingar
Laust er starf í afleysingar í Íþróttahúsi Tálknafjarðar. Um er að ræða afleysingastarf og felst það í
afgreiðslu,gæslu og vörslu með íþróttasal, sundlaug,klefagæslu og þrif.
Viðkomandi þarf að vera kurteis og lipur í mannlegum samskiptum, duglegur, skapgóður og tilbúinn til að takast á við margvísleg verkefni, þá er skylt að afla upplýsinga úr sakaskrá skv. 4.mgr. 10.gr. æskulýðslaga nr.70/2007, benda má á að eyðublöð til útfyllingar þar að lútandi má finna inn á heimasíðu Tálknafjarðar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið skyndihjálparprófi frá viðurkenndum aðila, slíkt próf má ekki vera eldra en tveggja ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOV-VEST og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára.
Áhugasamir hafi samband við:
Pálínu Kristínu í síma 6909939
netfang sundlaug@talknafjordur.is
eða Eyrúnu I. Sigþórsdóttur oddvita í síma 456-2539
netfang oddviti@talknafjordur.is
Umsóknarfrestur er til 27.ágúst 2011.
Pálína Kr. Hermanns. Umsjónarmaður Íþróttarhúss.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir