Starfsmaður við félagsstarf eldri borgara
Starf aðstoðarmanns í félagsstarfi aldraðra í Eyrarseli á Patreksfirði er laust til umsóknar.
Starfsmaður starfar náið með forstöðumanni og mun leiða einstök verkefni innan félagsstarfsins.
Í starfinu felst m.a. að:
- Taka þátt í að móta og skipuleggja félagsstarfið með forstöðumanni
- Leiðbeina fólki við handverk og félagsstarf
- Hafa til létta hressingu
- Sjá um þrif á húsnæðinu
- Sjá um innkaup í samráði við forstöðumann
Helstu kröfur til starfsmanns eru:
- Hæfni og áhugi á mannlegum samskiptum
- Áhugi og færni í ýmisskonar handverki og félagsstarfi
- Vera tilbúin til þess að sækja námskeið
Launakjör fara eftir gildandi kjarasamningum.
Um tímavinnu er að ræða.
Ráðið verður í starfið sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað.
Allar frekari upplýsingar fást hjá félagsmálastjóra í síma 450 2300 eða elsa@vesturbyggd.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir