A A A

Stígamót, þjónusta íbúa Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps

Stígamót, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa gert með sér samkomulag um þjónustu Stígamóta við íbúa byggðarlaganna.  Samkomulagið er gert til reynslu í þrjá mánuði.  Vestfirðingar greiða ferðakostnað, en Stígamót senda á sinn kostnað ráðgjafa á staðinn hálfs mánaðarlega.   Sú heitir Þórunn Þórarinsdóttir og mun bjóða upp á ókeypis viðtalsþjónustu og ef þátttaka verður mikil, kemur vel til greina að starfrækja sjálfshjálparhóp líka. 

 

Sambærilega þjónustu höfum við starfrækt á Austfjörðum í sjö ár og alltaf hafa færri komist að en hafa viljað.  Við höfum líka í skemmri tíma þjónustað fólk á Sauðárkróki, í Grundarfirði, í Borgarnesi og á Akranesi, í Vestmannaeyjum og á  Selfossi.  En ef þjónustan á að nýtast verðum við að tryggja að fólk viti um hana. Það er líka mikilvægt að ná til  þeirra lykilaðila sem eru í sambandi við íbúanna og gætu vísað á þjónustu okkar.  Við höfum því þá reglu þegar við förum á nýja staði að kynna starfið rækilega.

 

Í lok sept. stóð til að hefja þjónustuna, en vegna ófærðar  tókst  það ekki.  Nú gerum við aðra tilraun og vonumst til þess að veðrið verði okkur  hliðholt.  Fulltrúum þeirra stofnana sem vinna með íbúum svæðisins er boðið  til lokaðs fundar með fulltrúum Stígamóta í Félagsheimilinu á Patreksfirði mánudaginn 1. des. kl. 15.  Þar munu þær Guðrún Jónsdóttir og Þórunn Þórarinsdóttir kynna starfsemina og þá þjónustu sem í boði er.  Að kvöldi þann 1. des. er almenningi boðið á opinn fund í Félagsheimilinu á Patreksfirði kl. 20.   Það fólk sem vill nýta sér viðtalsþjónustuna mun hringja á  Stígamót og panta tíma og fá þá að vita hvar þjónustan fer fram.  Staðsetningin verður ekki gefin upp til annarra, til þess að tryggja trúnað.  Í janúar verður þjónustan kynnt sérstaklega í Framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón