Stofnfjárfestar í SpKef boða til aðalfundar
Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík hafa ákveðið að vera með aðalfund miðvikudaginn 30. maí nk. og hefst fundurinn kl 18. Fer hann fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Áhugi er fyrir að vera með fjarfundabúnað á fundinum svo flestir stofnfjáreigendur geti fylgst með. Það virðist hafa myndast áhugi með fólks,á því að skoða málsókn á hendur yfirmönnum, stjórn og endurskoðendum Sparisjóðsins í Keflavík. Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður samtakana ætlar að mæta á fundinn og kynna fyrir okkur hvernig staðið yrði að þessum málaferlum. Reikningar félagsins verða kynntir og ýmis önnur hagsmunarmál rædd,“ segir í tilkynningu frá Samtökum stofnfjárfesta í SpKef.
Frétt tekin af visir.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 44. fundur 11. október 2023 (fundargerð vantar)
- Fræðslunefnd | 14. fundur 8. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 622. fundur 14. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 13. fundur 17. október 2023
- Sjá allar fundargerðir