Stóri plokkdagurinn 2020
Stóri plokkdagurinn var dagsettur 25. apríl en vegna ástandsins í samfélaginu ákváðum við í skólanum að fresta deginum. Á þessum degi eru allir hvattir til þess að fara út og plokka eða týna rusl í sínu nærumhverfi. Það er hópurinn Plokk á Íslandi sem stendur fyrir deginum.
Grænfánanefnd Tálknafjarðarskóla bauð íbúum á Tálknafirði að þátt í þessu verkefni laugardaginn 16. maí síðastliðinn og var vel mætt. Kristinn Hilmar Marinósson kom færandi hendi með fjölnota poka til að týna í og vigtaði síðan allt það rusl sem var týnt. Alls vó það 637 kíló ! Vel gert ! Í lokin var boðið upp á kræsingar sem var vel þegið eftir góðan dag í plokki.
Takk allir sem komu og tóku þátt í þessu með okkur. Við látum myndirnar tala.
talknafjardarskoli.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir