Strandveiðar - reglugerð 2012
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um strandveiðar 2012.
Nokkrar breytingar eru frá fyrirkomulagi veiðanna í fyrra. Það helsta er að forsenda þess að viðkomandi bátur fái heimild til strandveiða er að eigandi sé lögskráður á bátinn. Í reglugerðinni er eftirfarandi útfærsla á eignarhaldsákvæðinu:
„Einungis er heimilt að veita hverri útgerð, eiganda, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip.
Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið. Þegar fiskiskip er í eigu lögaðila er fullnægjandi ef einn eigenda lögaðilans er lögskráður á skipið. Í umsókn lögaðila um leyfi til strandveiða skulu koma fram upplýsingar um eignarhald á lögaðilanum og þann/þá sem koma til með að vera lögskráðir á fiskiskip.“
Tekið af: smabatar.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir