A A A

Styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  2. Einstæðar mæður.
  3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.

 

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2014 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Netfang:  haukurhannibalsson@simnet.is

 

Í stjórn sjóðsins eru:  Haukur Hannibalsson, Óli Th.Hermannsson og Sigurður H. Magnússon.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón