A A A

Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstunda­styrki til lágtekju­heimila. Um er að ræða aðgerðir stjórn­valda vegna Covid-19. Styrk­urinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heim­ilum þar sem heild­ar­tekjur fram­fær­enda, einstak­lings, hjóna eða sambúð­ar­fólks, voru að meðal­tali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tíma­bilinu mars–júlí 2020.
 

Áður en þú sækir um styrkinn þarftu að kanna hvort heimilið falli undir ofangreint tekjuviðmið. Það gerir þú með því að skrá þig inn hér á Ísland.is með rafrænum skilríkjum. Athugið að sé um hjón/sambúðarfólk að ræða þurfa báðir aðilar að samþykkja að upplýsingar um tekjur séu sóttar til skattayfirvalda (RSK) svo hægt sé að staðfesta hvort heimilið falli undir tekjuviðmiðið eða ekki.
 

Ef þú færð svar um að þú eigir rétt á að sækja um styrk færð þú nánari upplýsingar um næstu skref. En þau eru að prenta og fyllta út eyðublað af heimasíðunni. Eyðublaðinu skilar þú svo á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps. Ef þú færð svar um að þú eigir ekki rétt á styrk færð þú upplýsingar um hvert þú getur leitað ef þú ert með athugasemdir við niðurstöðuna eða fyrirspurnir. Hægt er að sækja um styrk til og með 1.mars 2021. Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020–2021.

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón