Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöð - sumarstörf 2022
Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöð.
Tálknafjarðarhreppur leitar að lifandi, skemmtilegum og þjónustulunduðum einstaklingum til að taka starfa við sumarafleysingar í Íþróttmiðstöð Tálknafjarðar sumarið 2022.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Almenn afgreiðsla.
-
Sundlaugarvarsla
-
Eftirlit með öryggi gesta í mannvirkjum Íþróttamiðstöðvarinnar.
-
Ræstingar og þrif íþróttamannvirkja.
-
Frumkvæði að lausn verkefna sem starfað er að.
-
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við forstöðumann Íþróttamiðstöðvar.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Góð færni í mannlegum samskiptum.
-
Góð þjónustulund.
-
Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
-
Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
-
Verður að standast þær kröfur sem gerðar eru til starfsfólks sem sinnir sundlaugarvörslu.
-
Góð kunnátta í íslensku og kunnátta í öðru tungumáli er kostur.
-
Hreint sakavottorð.
Unnið er samkvæmt vaktaskipulagi.
Unnið er undir stjórn forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar.
Um er ræða tímabundin störf sumarið 2022 og eru laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Hægt er að hringja í 846-4713 eða senda tölvupóst í netfangið sundlaug@talknafjordur.is til að fá nánari upplýsingar hjá Bjarnveigu Guðbrandsdóttur, forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar.
Umsóknareyðublöð er að finna á talknafjordur.is og hægt er að skila útfylltum umsóknum á skrifstofu Tálknafjarðarhrepp eða með því að senda þær netfangið talknafjordur@talknafjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2022
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir