Sumarstörf
Starfskraftur óskast til þess að hafa yfirumsjón og verkstjórn með vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2014 er stendur frá 5.júní til og með 18.júlí.
Menntunar- og hæfniskröfur :
- Reynsla og menntun/þekking á skipu- og verklagi við umhirðu grænna svæða.
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Ökuréttindi
- Reyklaus
- Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 25 ára
Starfsfólk óskast til þess að sinna umhirðu grænna svæða og minniháttar viðhaldsverkum s.s. málningarvinnu. Laus eru til umsóknar fjögur 100 % stöðugildi, vinnutími frá kl. 8 – 12 og 13 – 17.
Vinnuskóli Tálknafjarðarhrepps hefst miðvikudaginn 5.júní og stendur til fimmtudagsins 18.júlí. Helstu verkefni skólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins. Þeir sem geta sótt um í vinnuskólanum eru börn fædd á árunum 1998 – 2000.
Reglur og skilmálar eru aðgengileg á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps sem og umsóknareyðublöð starfsumsókn og sérstök umsókn um vinnuskóla.
Nánari upplýsingar m.a. um launakjör veitir sveitastjóri skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, í síma 456-2539 og netfang sveitarstjori@talknafjordur.is
Umsóknareyðublöð starfsumsókn og umsókn um vinnuskóla eru aðgengileg á skrifstofu og á heimasíðu undir skrár og skjöl.
Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrir 25.maí n.k.
sveitarstjóri
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir