Sumarstörf hjá Westfjords Adventures á Patreksfirði
Ferðaskrifstofan Westfjords Adventures óskar eftir starfsfólki í sumar. Um er að ræða bílstjóra, leiðsögufólk og starfsfólk í ferðamannamiðstöð Westfjords Adventures.
Leiðsögufólk – Bílstjórar
Störfin fela í sér að fara í skipulagðar ferðir með hópa um sunnanverða Vestfirði og víðar. Um er að ræða rútuferðir, gönguferðir, hjólaferðir, jeppaferðir o.fl.
Fullt starf eða hlutastarf kemur til greina.
Hæfniskröfur
- Góð íslensku- og enskukunnátta og kunnátta í þriðja tungumálinu æskileg
- Stundvísi og dugnaður er áskilinn
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Ökuréttindi B/far og D1 skilyrði (bílstjórar) eða æskileg (leiðsögumenn)
Viðkomandi þarf að geta byrjað í lok maí og unnið út ágúst. Vinna hluta úr sumri kemur einnig til greina.
Starfsfólk í ferðamannamiðstöð Westfjords Adventures (Tourist Center)
Sala á ferðum, upplýsingamiðlun og aðstoð við ferðamenn.
Fullt starf eða hlutastarf kemur til greina.
Hæfniskröfur
- Góð íslensku- og enskukunnátta og kunnátta í þriðja tungumálinu er æskileg
- Stundvísi og dugnaður er áskilinn
- Þekking á sunnanverðum Vestfjörðum er mikilvæg
Viðkomandi þarf að geta byrjað í lok maí og unnið út ágúst. Önnur tilhögun kemur einnig til greina
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.13
Áhugasamir vinsamlegast sendið ferilskrá á neðangreind netföng
Gunnþórunn Bender s.690-8025 gunnthorunn@westfjordsadventures.com
Leiknir Kristjánsson s. 898-5678 leiknir@westfjordsadventures.com
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Skipulagsnefnd | 12. fundur 19. september 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 43. fundur 13. september 2023
- Fræðslunefnd | 12. fundur 13. september 2023
- Sveitarstjórn | 619. fundur 26. september 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sjá allar fundargerðir