Til hunda- og kattaeigenda á Tálknafirði
Þriðjudaginn 8.október n.k. verður Sigríður Inga dýralæknir stödd hér á Tálknafirði til að framkvæma hunda- og kattahreinsun. Sigríður verður með aðstöðu í áhaldahúsinu að Strandgötu 50, frá kl. 14:00 – 16:00.
Innifalið í leyfisgjöldum er hreinsun og ábyrgðartrygging, óski fólk eftir bólusetningu eða annarri meðferð þarf að panta fyrirfram í síma 861-4568 . Eigendur dýra þurfa að greiða sérstaklega fyrir þá þjónustu.
Vakin er athygli á því að vanræki eigendur dýra þessa skyldu sína er það skýlaust brot á samþykktum um hunda og kattahald í Tálknafjarðarhreppi.
Eigendum óskráðra dýra er bent á að kynna sérsamþykktir og gjaldskrár um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir