Tilkynning frá versluninni Fjölval
Ágætu viðskiptavinir.
Við erum mjög stolt af því að geta boðað góð tíðindi í verslunarmálum á svæðinu.
Við höfum náð samningum um sölu á Euroshopper vörunum frá Hagkaup/Bónus í versluninn okkar á Patreksfirði. Að auki höfum við fengið leyfi til að selja vörumerki Himneskt frá Sollu í grænum kosti og fleiri vörumerki sem Hagkaup/Bónus er með umboð fyrir.
Að okkar mati eru þetta stór tíðindi sem leiða til mikillar lækkunar á vöruverði á svæðinu.
Í hús eru komnar rúmlega 140 vörur frá Euro-shopper og væntanlegar eru vörur í öðrum merkjum.
Á þriðjudagskvöld verða þessar vörur allar komnar í hillur. Af þessu tilefni bjóðum við þér að koma í verslunina Fjölval á milli kl. 18.oo og 21.oo og kynna ykkur vöruframboðið.
Heitt kaffi verður á könnunni og hver veit nema í boði verði smá matarbiti.
Í auglýsingunni eru nokkur verðdæmi til samanburðar, endilega kynnið ykkur þetta ágæta framtak.
Við minnum á að það er opið til kl. 20.00 alla virka daga
og frá 11-16 um helgar.
Við viljum einnig minna á 30% afslátt af grænmeti (nema kartöflum) og ávöxtum alla laugardaga.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir