Tillaga um nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar
Opinn kynningarfundur á Bíldudal, 3. desember 2012 kl 20.00
Kynningarfundur á tillögu að nýtingaráætlun strandsvæðis Arnarfjarðar verður haldinn í Félagsheimilinu Baldurshaga, Bíldudal. Mánudaginn 3. desember n.k. kl 20.00.
Tillagan er hluti af stærra verkefni sem kallast Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða. Fjórðungssamband Vestfirðinga, Teiknistofan Eik og Háskólasetur Vestfjarða standa að verkefninu.
Markmið þess er að skipuleggja strandsvæðin með svipuðum hætti og gert er á landi en á Íslandi nær skipulagsvald sveitarfélaga aðeins til lands, nánar tiltekið út að 115 m frá stórstraumsfjöruborði. Áætlunin er þannig yfirlýsing sveitarfélaganna um það hvernig þau vilja að strandsvæðin séu nýtt en er einnig samantekt á ýmsum forsendum fyrir ákvarðanatöku á strandsvæðinu.
Nýtingaráætlunin á að vera verkfæri fyrir sveitarstjórnir, leyfisveitendur og hagsmunaaðila til þess að bæta ákvarðanatöku. Henni er ætlað að stuðla að sjálfbærri nýtingu og þróun á svæðinu og efla það með sameiginlegri stefnumótun, er byggi á styrkleikum svæðisins og þeim auðlindum sem þar er að finna.
Nánari upplýsingar um nýtingaráætlunina, m.a. tillögu að greinargerð og uppdráttum, er að finna á heimasíðu Fjórðungssambands Vestfirðinga: http://www.fjordungssamband.is/nytingaraaetlun/
Fyrir hönd fundarboðenda.
Fjórðungssamband Vestfirðinga
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 13. fundur 21. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 14. fundur 21. nóv 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 11. fundur 23. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 623. fundur 28. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Sjá allar fundargerðir