A A A

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014 hefst hjá sýslu-manninum á Patreksfirði mánudaginn 7. apríl 2014.  

 

Hægt er að kjósa á skrifstofutíma frá kl. 8:30 til 12 og 13 til 15:30 virka daga en á uppstigningardag, 29. maí nk., frá kl. 10 til 12 og 13 til 15:30.

 

Ekki verður hægt að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni á skírdag, 17. apríl, föstudaginn langa, 18. apríl, annan í páskum, 21. apríl, sumardaginn fyrsta, 24. apríl og 1. maí.

 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Reykhólahreppi verður auglýst sérstaklega á ákveðnum dögum á heimasíðu Reykhólahrepps www.reykholar.is en kosið verður á skrifstofu Reykhóla-hrepps.  Nánari upplýsingar veitir sýslumaður í síma:  450-2200.

 

Kjósandi, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun.  Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag eða eigi síðar en kl. 16 þriðjudaginn 27. maí nk.

 

Kjósandi sem vill greiða atkvæði utan kjörfundar, skal gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum.

 

Þá er vakin athygli á að einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá öðrum sýslumönnum.  

 

Sýslumaðurinn á Patreksfirði
1. apríl 2014

 Úlfar Lúðvíksson

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón