Veggspjaldasýning um Stein Emilsson jarðfræðing 2013
Með skráningu jarðfræðisafns Steins Emilssonar árið 2007 kom upp sú hugmynd að sýna og fræða fólk um líf og verk þessa athafnamanns (1893-1975) sem m.a var skólastjóri í Bolungarvík og ritstjóri tímaritsins „Vesturlands“.
Á veggspjaldasýningunni er m.a. fjallað um jarðvegsrannsóknir Steins á Íslandi sem hann borgaði yfirleitt úr eigin vösum, um tillögur hans um jarðfræði Íslands og áhrif verkefna hans á vísindin og þjóðfélagið. Steinn Emilsson, jarðfræðingur (Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1999).
Stuðst var við greinar sem hann samdi sjálfur og hafa verið skrifaðar um hann en ekki síður Steina- og jarðfræðisafnið hans og dagbækur sem erfingjar Steins afhentu Náttúrugripasafni Bolungarvíkur árið 1998. Sýningin er farandssýning sem sýnd er bæði í skólum og söfnum á Vestfjörðum.
Sýningin var fyrst sett upp í Náttúrugripasafni Bolungarvíkur.
Sýningin er nú uppsett í anddyri Skorar þekkingarseturs á Patreksfirði og er opin virka daga á opnunartíma setursins næstu vikur.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 10. fundur 2. maí 2023
- Sveitarstjórn | 612. fundur 9. maí 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 9. fundur 27. mars 2023
- Fræðslunefnd | 9. fundur 12. apríl 2023
- Skipulagsnefnd | 8. fundur 18. apríl 2023
- Sjá allar fundargerðir