A A A

Vika til stefnu

Nú er vika til stefnu fyrir þá sem ætla sér að sækja um styrki til Menningarráðs Vestfjarða. Umsóknarfrestur vegna seinni úthlutunar ársins 2011 rennur út á miðnætti 6. október næstkomandi. Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, svo framarlega sem umsókn eða verkefni stangast ekki á við úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Umsóknir og verkefni hverju sinni eru borin saman á samkeppnisgrundvelli.

Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við seinni úthlutun ársins 2011 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.
# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.

Umsóknarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 6. október. Úthlutun fer fram í nóvember. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Vestfjarða á til þess gerðu eyðublaði eða í gegnum umsóknarform á vef Menningarráðs Vestfjarða - www.vestfirskmenning.is - undir tenglinum Styrkir. Umsækjendur eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á sama stað og þar má nálgast lista um verkefni sem styrkt hafa verið við fyrri úthlutanir.

Vakin er athygli á þeirri breytingu að fylgiskjöl með umsóknum eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón