A A A

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða

Auglýst er eftir styrkumsóknum til Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða vegna ársins 2016. Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 22. janúar 2016.  

Uppbyggingarsjóður er hluti af Sóknaráætlunar Vestfjarða og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga. Hann hefur nú tekið við hlutverki Menningarráðs Vestfjarða og Vaxtarsamnings Vestfjarða og veitir styrki til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Uppbyggingarsjóður varð til með samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 sem undirritaður var 10. febrúar 2015. Sérstök níu manna úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs sér um að fara yfir umsóknir og úthluta styrkjum, á grundvelli Sóknaráætlunar Vestfjarða, áherslna og úthlutunarreglna, auk gæða umsókna og verkefna.

Sjá nánar á : vestfirdir.is/Uppbyggingarsjodur/

Endurnýjun húsaleigubóta

Minnt er á að sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin þannig aðeins til ársloka. Umsókn um húsaleigubætur og fylgigögnum þarf að berast til Félagsþjónustu Vestur-Barðastrandarsýslu, Aðalstræti 75, fyrir 15. janúar 2016. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Velferðarráðuneytis
https://www.velferdarraduneyti.is/media/acrobat-eydublod/Eydublad_Husaleigubaetur.pdf 

 

Na początku roku należy wznowić wniosek o dotację mieszkaniową
Sækja þarf um húsaleigubætur að nýju í upphafi hvers árs.
 

Na początku każdego roku kalendarzowego należy wznowić wniosek o dotację mieszkaniową. Wniosek należy złożyć w gminie, w której wnioskodawca ma stały adres zamieszkania. Wnioski dostępne saąw urzędach gmin oraz na stronie Ministerstwa Spraw i Ubezpieczeń Społecznych http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/husnaedismal/husaleigubaetur/

Fyrir 15. janúar 2016

http://mcc.is/polszczyzna/wiadomosci/wiadomosci/nr/923

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps sendir íbúum Tálknafjarðar hugheilar jóla og nýársóskir.


Sveitarstjóri.

Skrifstofan lokuð

Skrifstofa Tálknafjarðarhrepps verður lokuð dagana 22. til 31. desember

 

Ef erindið er brýnt er bent á síma sveitarstjóra 456-2531

 

Indriði Indriðason, sveitarstjóri


Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur

493. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, þriðjudaginn 15. desember 2015 og hefst kl. 17:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)
  
                        Sveitarstjóri

AUGLÝSING um starf á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps

Auglýst er laust til umsóknar starf  móttökufulltrúa Tálknafjarðarhrepps

 

Starf móttökufulltrúa  fellur undir stjórnsýslu og rekstrarmálefni Tálknafjarðarhrepps og heyrir undir sveitarstjóra. Vinnutími er frá kl.10.00 til kl.14.00 virka daga.

 

Helstu verkefni eru:

 

Móttaka þeirra sem eiga erindi á sveitarskrifstofuna, símsvörun, umsjón, flokkun  og skráning skjala  í tölvukerfi  hreppsins, hverskonar opinber skráning, innkaup rekstrarvöru fyrir sveitarskrifstofuna, umsjón og bókun fundarsalar, aðstoð við formenn nefnda vegna funda, umsjón með fundargerðarbókum nefnda, ráða og stjórna. Önnur almenn verkefni á skrifstofu samkvæmt nánari fyrirmælum sveitarstjóra.

 

Hæfniskröfur

 

• Haldgóð þekking á Word og Excel er nauðsynleg.

• Þjónustulund, þolinmæði, rík ábyrgðarkennd og hæfni í mannlegum samskiptum.

• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

 

Starfið er veitt frá  4. janúar n.k. eða eftir nánara samkomulagi.  Launakjör eru samkvæm samningum sveitarfélaga við Starfsmannafélag FosVest

Allar upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri sveitarstjori@talknafjordur.is í síma 456-2539

Umsóknir skal senda til sveitarstjórans á Tálknafirði, Miðtúni 1, 460 Tálknafjörður eða í netfangið sveitarstjori@talknafjordur.is 

 

Tálknafjörður 10.12.2015

Indriði Indriðason, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón